Óskarspá 2011

Besta Myndin

Black Swan

Black Swan er mynd sem höfðar ekki til allra, og þar á meðal ekki til mín. Mér fannst myndin langdregin en þó athyglisverð og öðruvísi. Gefur manni góða sýn inn í líf geðsjúklings.


The Fighter

The Fighter er frábært fjölskyldudrama. Myndin skartar fjölda stórleikara á borð við Christian Bale, Mark Wahlberg og Melissa Leo. Hún er einnig góð forvarnamynd sem skólar ættu að taka upp á að sýna.


Inception

Þessi mynd er ein sú besta sem ég hef séð. Hún er draumaheimur kvikmyndaáhugamannsins. Gríðarlegt listaverk sem skartar öllu sem til þarf; spennu, drama og hasar.


The Kids Are All Right

Þessa mynd get ég ekki dæmt því ég hef ekki séð hana.


The Kings Speech

Ræða konungsins er út af fyrir sig mjög góð mynd. Flestir sem telja hana eiga erindi til að vinna þennan flokk. En þó er einungis eitt sem þessi mynd nær fram yfir aðra og það er leikurinn í henni. Colin Firth og Geoffrey Rush eru frábærir!


127 hours

 Myndin hefur klárlega ekki kostað mikið enda gerist hún nánast einungis á einum stað. Til að gera slíka mynd spennandi og áhugaverða þurfa margir hlutir að haldast í hendur. Miðað við efnið þá tókst öllum vel til. Fyrst og fremst verður að hrósa þeim Danny Boyle leikstjóra og aðalleikaranum James Franco. Sjálfur er ég mikill aðdáandi þeirra enda fara þeir sínar eigin leiðir.


The Social Network

Þetta er sú mynd sem ég hafði mest gaman af á liðnu ári. Jesse Eisenberg er algjört æði sem steikt tölvunörd og ég vill fyrir hönd skemmtilegra mynda vona það að hún vinni þessi verðlaun.


Toy Story 3

Hvað getur maður sagt? Þetta er teiknimynd! Allir krakkar myndu velja þessa mynd en sjálfum fannst mér hún frekar óspennandi. En Toy Story er Toy Story...


True Grit

Coen bræður eru svakalegir garpar. Það hlýtur að vera eitthvað varið í menn sem gera hverja stór myndina á fætur annarri. Litla Hailee Steinfeld og Jeff Bridges fara á kostum sem ungur og gamall kúreki. Svo slær Josh Brolin í gegn sem aumingjalegur út úr lifaður morðingi sem hefur ekki margt á milli eyrnanna. Frábær mynd!


Winter’s Bone

Þessa mynd sá ég í fyrra dag. Ég veit ekki hvað skal segja, en ég fýlaði hana ekki. Hún gerist á bóndabæ nokkrum og er hæg og hreinlega leiðinleg. Það eru þó ekki allir á sama máli og ég sem betur fer. Ég spái henni ekki velgengni í kvöld.

Sigurvegari: The Social Network

Besti Leikarinn

Javier Bardem – Biutiful
Jeff Bridges – True Grit
Jesse Eisenberg – The Social Network
Colin Firth – The King’s Speech
James Franco – 127 Hours

Sigurvegari: Colin Firth fyrir hinn stamandi konung. Ég hef sjaldan séð eins góðan leik.

Besta Leikkonan

Annette Bening – The Kids Are All Right
Nicole Kidman – Rabbit Hole
Jennifer Lawrence – Winter’s Bone
Natalie Portman – Black Swan
Michelle Williams – Blue Valentine

Sigurvegari: Ég vildi að ég gæti sagt Jennifer Lawrence en verður það ekki Natalie Portman?

Besti Leikari í Aukahlutverki

Christian Bale – The Fighter
John Hawkes – Winter’s Bone
Jeremy Renner – The Town
Mark Ruffalo – The Kids Are All Right
Geoffrey Rush – The King’s Speech

Sigurvegari: Christian Bale fyrir einstakan leik sem eiturlyfjasjúklingur.

Besta Leikkona í Aukahlutverki

Amy Adams – The Fighter
Helena Bonham Carter –The King’s Speech
Melissa Leo – The Fighter
Hailee Steinfeld – True Grit
Jacki Weaver – Animal Kingdom

Sigurvegari: Væri rosalega gaman ef hin unga Hailee Steinfeld ynni en ég spái Helenu Bonham Carter sigurinn fyrir frábæran leik sem stuðningsrík eiginkona eins áhrifamesta manns heims á sínum tíma.

Besti Leikstjórinn

Darren Aronofsky – Black Swan
David O. Russell – The Fighter
Tom Hooper – The King’s Speech
David Fincher – The Social Network
Joel and Ethan Coen, – True Grit

Sigurvegari: Mér finnst ansi skrítið að Danny Boyle sé ekki tilnefndur því ég hefði kosið hann þann besta. En ég tel að bræðurnir og snillingarnir Joel og Ethan Coen muni vinna þessi verðlaun.

Besta Teiknimyndin

How to Train Your Dragon
Illusionist
Toy Story 3

Sigurvegari: Hef einungis séð tvær af þessum myndum en var Toy Story ekki tilnefnd sem besta myndin? Er þá ekki eðlilegt að hún vinni verðlaunin: Besta teiknimyndin. 


Besta Upprunalega Handritið

Another Year
The Fighter
Inception
The Kids Are All Right
The King’s Speech

Sigurvegari: Inception fyrir gríðarlega spennandi og margbrotinn söguþráð. Ég skil ekki hvað The Kings Speech er að gera í þessum flokki!

Besta Handritið Byggt á Áður Útgefnu efni

127 Hours
‘The Social Network
Toy Story 3
True Grit’
Winter’s Bone

Sigurvegari: True Grit tel ég að vinni þessi verðlaun enda er hún skemmtileg og með áhugaverðasta sögusviðið.


Um árangursyfirlýsingar formanns Vinstri grænna

Grein eftir mig og Andra Þorvaldsson sem birt var i morgun i Morgunblaðinu:

Í jólakveðjum formanns Vinstri grænna, Steingríms Sigfússonar er upptalið sá árangur sem náðst hefur í að berja niður áhrif kreppurnar. Og auðvitað ber að fagna þeim tölum sem formaðurinn telur upp, verðbólgan hefur hjaðnað, vextir eru komnir niður í 4% og hafa ekki verið lærri í áraraðir, útkoma ríkissjóðs var betri en fjárlög gerðu ráð fyrir og voru það einnig 2009. Einnig telur Steingrímur upp ákveðna jákvæða þætti sem ríkisstjórnin hefur komið í gegn. Ný hjúskaparlög tóku gildi, varnarmálastofnun var lögð niður, starfsemi sérstaks saksóknara var efld til muna, skattkerfinu var breytt til aukins jöfnuðar. En gleymir síðan að nefna hið frábæra fordæmi sem þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave samninganna var og hvað hún hjálpaði nefnd Lee Buchheit´s.

Síðan var ekki talað um það sem miður fór, því það var margt. Hann talar jú um að skuldamálin hafi alltof seint verið leyst og reyndar hafa þau ekki verið leyst þar sem þúsundir fjölskyldna bera stóran skuldabagga á bakinu og munu gera það næstu áratugina fari ekki fram almenn leiðrétting á húsnæðislánum. Réttarkerfið var svo misnotað í þágu lánastofnana þegar dómur féll um gengistryggð bílalán, seðlabankinn setti sína eigin okurvexti á lánin.

Ekki var farið í breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu skv. stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Sjávarútvegsráðherra gerði þó tilraun til þess með að lýsa því yfir að ef auknar veiðiheimildir yrðu gefnar út þá myndi sú aukning vera leigð út, þ.a.s. Fyrsti hluti fyrningar færi fram. Þessi hugmynd var söltuð í lok árs. Áfram má nefna ýmsa þætti, skorið var niður á sjúkrahúsum á landsbyggðinni upp á 20-30% og áhrif niðurskurðarinnar er strax farinn að láta á sér bera, nýtingarréttur HS orku var einkavæddur til skúffufyrirtækis kanadíska stórfyrirtækisins Magma Energy, um 50 milljarðar voru notaðir í að bjarga þremur fyrirtækjum, þar af fjárfestingabanka sem varla er starfræktur lengur. Krónubréfaeigendum var bjargað, afskrifaðir voru tugir og jafnvel hundruðir milljarðar hjá fyrirtækjum sem m.a. eru í sjávarútvegi.

Héraðsdómur hélt áfram að vinna með kæru Alþingis á þeim níu sem ákærð voru fyrir að ráðast á Alþingi. Steingrímur J. Sigfússon komst til valda í skjóli þeirrar byltingar sem þau fræknu níu voru hluti af. Ekki hefur hann né samstarfsmenn hans lagt sitt á vogarskálarnar til að fá þessar ákærur felldar niður. Og virðist það vera mun auðveldara í íslensku réttarríki að ákæra mótmælendur en aðila í stjórnmála- og fjármálalífinu hér á landi.

Einnig nefnir Steingrímur stoltur að á árinu 2010 hafi tvær vel heppnaðar endurskoðanir AGS farið fram. Í þeirri fyrri var sáttmáli um að í október 2010 yrði ekki leyft gjaldþrota fólki að búa áfram í húsum sínum, í byrjun október voru síðan haldin stærstu mótmæli sem fram hafa farið með tilheyrandi látum. Mótmælin beindust fyrst og fremst af ónægjanlegri og ófullnægjandi aðstoð yfirvalda fyrir húsnæðisskuldara. Það er því merkilegt að sjá þessa fyrstu ,,hreinu vinstristjórn“ landsins mæla árangur sinn útfrá því hversu vel þau geta framfyglt fyrirmælum AGS.

Hver eiga verkefnin að vera á árinu 2011? Það er nokkuð ljóst að núverandi ríkisstjórn starfar við mjög erfiðar aðstæður, í þessum aðstæðum felast þó mörg tækifæri, tækifæri breytinga. Árið 2011 á að nota í að vinna að nýjum gildum í vinnubrögðum í stjórn landsins, árið 2011 hefur ríkisstjórnin tækifæri til að reka burt gamla Ísland sem liggur með timburmenn víða í stjórnkerfi landsins, árið 2011 á að nota í að stokka upp fjármálakerfið en ekki byggja það upp að forskrift AGS, það á að vera í þágu alþýðunnar. Einnig er mikilvægt að unnið verði af því hörðum höndum að ná fram breytingum á fiskveiðikerfinu skv. stefnuskrám stjórnarflokkana.

Vernda verður orkuauðlindirnar sem stórir erlendir aðilar munu reyna að komast í og vinna verður að því að ná til baka hlut Magma Energy í HS-orku. Síðustu mánuði hafa raddir í samfélaginu beðið þjóðina vinsamlegast að hætta þessari eymd og volæði og vissulega mun mörgu bera að fagna á árinu, t.d. mun í febrúar stjórnlagaþing byrja að starfa og í sumar mun svo íslenskt karlalandslið í knattspyrnu leika í fyrsta sinn á stórmóti.

En muni ríkisstjórnin ekki snúa við stefnu sinni í mörgum málum er nær öruggt að hún lifir ekki árið af.

Verði steinum velt í götuna fyrir núverandi uppbyggingu verður það gert af yfirlögðu ráði og af ástæðu. Steingrímur J. Sigfússon verður að gera sér grein fyrir því að hann er í stjórnmálaflokki sem vinnur að félagshyggju og lýðræði. Vinni hann áfram gegn stefnu flokksins mun hann annaðhvort missa stól sinn sem formaður eða kljúfa Vinstrihreyfinguna grænt framboð endanlega.

Með óskum um gleðilegt nýtt ár.

Ágúst Valves Jóhannesson og Andri M. Þorvaldsson
Höfundar eru flokksmenn í Vinstri grænum


Hermann og Þorleifur báðir betri kostur en Sóley

Hermann Valsson er góður félagi og sá maður sem er hvað best inn í málum borgarinnar innan Vg. Það er kannski ekki frásögu færandi nema vegna funds sem ég fór á tveimur vikum fyrir forvalskosningar Vinstri grænna í Reykjavík. Þar voru mættir borgarfulltrúarnir Þorleifur Gunnlaugsson, Sóley Tómasdóttir og varaborgarfulltrúinn Hermann Valsson sem er einnig í 70% starfi innan flokksins til að sinna verkefnum borgarinnar með þeim Þorleifi og Sóleyju. Það var svo áberandi hversu Hermann og Þorleifur voru miklu betur inn í málum en Sóley. Sóley neyddist ítrekað til að beina málum til þeirra Hermanns og Þorleifs sérstaklega í leik- og grunnskólamálum og auðlindamálum en eins og margir þekkja til að þá eru þetta tveir af fjórum stærstu málaflokkum borgarinnar ásamt félagskerfinu og skipulagsmálum. Þetta er vandræðalegt fyrir Sóleyju sem er nú orðinn oddviti Vg í borginni. En það er samt alveg ljóst hver er eiginlegur og andlegur leiðtogi og það er Þorleifur og hann verður það áfram færni hans vegna.

Hermann Valsson beið afhroð í forvalskosningum Vinstri grænna fyrir tveimur helgum síðan. Ástæðan fyrir því að mínu viti er sú að ákveðinn hópur innan flokksins vann markvisst gegn þeim Hermanni og Þorleifi. Sökum gríðarlega góðrar kosningastjórnar Haralds Þorleifssonar sonar Þorleifs Gunnlaugssonar fyrir pabba sinn að þá náði Þorleifur öðru sætinu. En málið er það; að Þorleifur fékk aðeins 90 atkvæði í annað sæti og það segir öllum þeim sem vel eru inn í því hvernig forvöl fara fram, Svavarsmafían vildi ekki Þorleif né Hermann í topp 6.

Nú bíður aðeins uppgjör Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, margt getur gerst næsta mánuðinn.


mbl.is Hermann studdi Ólaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin situr af sér storminn... eins og mig grunaði

Í allt sumar, haust og vetur hafa forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna hótað ítrekað að ríkisstjórnin myndi falla færu stjórnarþingmenn ekki algjörlega eftir höfði þeirra í umræðum að aðildarviðræðum við Evrópusambandið og í Icesave deilunni.

Það hefur þó komið á daginn að ríkisstjórnin er föst við stærra akkeri en svo að Icesave stormurinn geti rústað henni. Ég fagna því!


mbl.is Sammála um að lágmarka ókyrrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er RÚV fjölmiðill í eigu sitjandi ríkisstjórnar eða þjóðarinnar?

Í kvöldfréttum sjónvarpssins var nánast einungis talað um Icesave. Fyrsta fréttin fjallaði um viðbrögð viðsemjenda Íslands, Breta og Hollendinga, önnur fréttin var um lánamatsstofuna Fitch sem sendi sendi Ísland niður í ruslflokk vegna lýðræðis, vegna þess að maðurinn sem gegnir æðsta embætti ríkisins leyfði þjóðinni að kjósa. Þriðja fréttin sagði frá aðilum vinnumarkaðarins sem lýstu yfir miklum vonbrigðum með að forsetinn hafnaði að skrifa undir, fjórða fréttin fjallaði svo loks um hvað forsetinn hafi sagt á blaðamannafundinum í morgun, fimmta sagði frá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar sem voru óánægð með niðurstöðu forsetans, sjötta um hvernig staðið yrði að þjóðaratkvæðagreiðslu. Loks í sjöundu sögðu forsvarsmenn stjórnarandstöðunnar að þjóðaratkvæðagreiðsla myndi engu rústa, áttunda var svo um að Ísland væri í óvissustöðu.

Eftir þessar sjö-fréttir hef ég svo hugsað um tilgang fyrir tilvist fréttastofu RÚV, fyrir hverja hún vinnur og hvort að persónulegar skoðanir fréttamanna sé í forgang fyrir góðum og sanngjörnum fréttaflutning.

Það er ljóst að Ísland er ekki sokkið, Ísland mun ekki sökkva og gleymum því svo ekki auð málinu var einungis skotið til þjóðaratkvæðagreiðslu, það var ekki fellt. Síðan tala allir stjórnmálamenn og æðstu ráðamenn um skuldbindingar okkar, skuldir okkar. Það er ljóst að íslenska þjóðin skuldar ekki einn eyri! Stjórnvöld undanfarinna ára og núverandi hafa hinsvegar hagað málum þannig að skuldbindingarnar eru orðnar þjóðarinnar. Það er jú þannig í kapítalismanum að lág- og miðstéttin borgar sukk hástéttarinnar.

Þjóðinni er skylt að stíga nú upp og segja stopp! Við verðum að standa saman að því að upplýsa bæði erlend lönd og stjórnvöld hér á landi að við höfum ekkert með Icesave að gera. Við berum ekki nokkra ábyrgð á þeim samningi.


mbl.is Staðfestir ekki Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mætum á Bessastaði kl. 10 í fyrramálið

Mætum á Bessastaði kl. 10 í fyrramálið og hvetjum forseta Íslands til að leyfa okkur að kjósa um þetta mál.

 Mætum, í alvöru talað!!! Sýnum lit og verum ekki löt.


mbl.is Felldu tillögu um þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásættanleg niðurstaða fyrir óákveðna þingmenn

Sumir kalla þetta lýðskrum, sumir kalla þetta snilld. Ég held að þetta sé brot af báðu. Ég hef verið á þeirri skoðun frá upphafi að þjóðin fái að skera úr um þetta stóra mál og raunar finnst mér að fleiri stór mál eigi að fá brautargengi í þjóðaratkvæðagreiðslum. Hinsvegar vekur allt sem frá Sjálfstæðisflokknum kemur efasemdir í svona litlu hjarta eins og í mér.

Ég tel að þessi breytingartillaga væri ásættanleg niðurstaða fyrir þá þingmenn sem hafa lýst efasemdum sínum á þetta mál og hvet ég þá samflokksmenn mína þau, Guðfríði Lilju, Ásmund Einar, Ögmund og Lilju Mósesdóttur til að samþykkja þessa tillögu og sitja hjá í stjórnarfrumvarpinu.

Það væri gríðarlega traustvekjandi fyrir Alþingi að lofa þjóðinni að skera úr um þetta mál og má þá segja að Alþingi fengi prik í kladdann hjá stórum hluta almennings.

 


mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóðið mig velkominn á ný.

Á moggabloggið er ég mættur aftur. Er það af því að ég hef fengið Davíðsheilkenni? Nei. Það er vegna þess að ég hef áttað mig á því að það er einfaldara að vinna gegn Davíð Oddssyni og hinu hápólitíska flokksblaði Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaðinu með því að skrifa innan veggja þess. Enn les ég einungis bíóauglýsingar moggans og íþróttasíðurnar.

Á þessu bloggi mun ég pæla, flytja áróður og skrifa pistla fulla af mínum húmor sem verður að koma í ljós hvort fólk kunni að meta.

Ég hlakka til að eiga skoðanaskipti við frjálshyggjupésa og flokkstrúða auðvaldsflokkana.

Bjóðið mig velkominn á ný.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband